Hlaðvarpið

13. þáttur Hlaðvarpið á jons.is Freyr Hákonarson Klepp

Informações:

Sinopsis

Freyr Hákonarson hjá Klepp Kleppur býður upp á sérhæfðar meðferðir í öllu sem viðkemur markaðssetningu. Freyr hefur verið í auglýsingageiranum í meira en 15 ár. Hann hefur komið að framleiðslu, markaðsráðgjöf, viðburðarstjórnun og snert á allskyns verkefnum í auglýsinga og markaðsmálum á Íslandi. Sjónvarp, útvarp, prent og skiltagerð ásamt fjölda uppákoma og gjörninga er meðal annars það sem Freyr hefur komið að. Freyr starfaði lengst af hjá Expo sem var þá í eigu Norvik og unnu fyrir Byko, Elko, Krónunni, Vífilfell, Bílnaust og fleiri. Eftir Expo fór Freyr að starfa hjá Árnasonum í um eitt og hálft ár. Í kjölfarið af því var til fyrirtækið Kleppur sem er meðferðarheimili fyrir fyrirtæki. Kleppur er samsett af sérfræðingum í mannauðstjórnun, markaðsmálum, textagerð, hugmyndafólki. Starfsmenn Klepps fara inní fyrirtæki og leysa verkefni með fyrirtækjum, greina vandamál, finna lausn og koma henni í farveg.