Hlaðvarpið

19. þáttur Hlaðvarpið á jons.is Einar Ben

Informações:

Sinopsis

Hlaðvarpið á jons.is sendir út aukaþátt þessa vikuna í tilefni þess að föstudaginn 10. mars er Ímark dagurinn. Einar Ben hjá Tjarnargötunni og stjórnarmeðlimur í Ímark kom í spjall. Hann segir okkur stuttlega frá framleiðslufyrirtækinu Tjarnargötunni ásamt því að ræða Ímark, Ímark daginn og íslensku auglýsingaverðlaunin Lúðurinn. "ÍMARK dagurinn er að þessu sinni helgaður sköpun; sköpunargleði og árangri af kynningar- og auglýsingastarfi. Hvernig er sambúð skapandi agaðrar hugmyndavinnu og markaðsstarfs sem krefst árangurs sem fyrst? Frummælendur koma úr ýmsum áttum og eiga það sameiginlegt að vera í fremstu röð í heiminum í sínu fagi. Tveir úr heimi stefnumótunar, almannatengill og hugmyndamaður. Öll segja þau sögur af verkefnum sínum, og leggja þær í sameiginlegan pott til að komast að niðurstöðu um sambúð frumlegrar hugsunar og markaðarins. Fyrirlesarar á ÍMARK deginum 2017 eru: Russell Davies , Chief Strategic Officer of BETC. Kevin Chesters, Chief Strategy Officer, Ogilvy & Mather Advertising London L